Ingibjörg
13.05.2008 17:48:08 / ingibjörg

Köben :)

Gleðilegt sumar allir saman :)

Núna á ég bara eitt próf eftir og svo förum við Mummi til Köben á fimmtudagsmorguninn :) Hlakka ekkert smá til. Jóel Helgi verður hjá mömmu, hann er sko alveg sáttur við það og hlakkar mikið til, ætlar að fara í afmæli til Jóns Gunnars á laugardaginn og svona skemmtilegt. Við Mummi ætlum sko að hafa það notalegt um helgina og njóta þess í botn að vera bara tvö, fara í tívolíið og á strikið og svona :)

Svo ætla ég að skella mér í kvennareiðina í Borgarnesi, held hún sé 31. mai. Það er líka mikil spenna fyrir því og ætlum við Eva að troðfylla hnakktöskurnar af eplasnafsi og loka vel svo þetta hrisstist ekki allt upp úr þeim eins og í fyrra hehe.

En já, annars er voða lítið að frétta hjá okkur. Bara búin að vera á fullu í próflestri, og er enn, síðasta prófið kl. 9 í fyrramálið, get ekki beðið eftir að vera búin. Ætla svo að fara með pabba og versla nýja tölvu eftir prófið. Mín tölva hrundi um jólin svo við höfum bara verið með tölvu í láni hjá Sigurvin.

En jamm ætla að halda áfram að lesa geðhjúkrun.

Kv. Ingibjörg


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 04:41:55 / ingibjörg

Páskar

Þá er maður kominn í páskafrí loksins. Er reyndar í vinnunni núna, tók eina auka næturvakt, en er svo að fara í sumarbústað á snorrastöðum þegar ég vakna í fyrramálið. Ætlum að reyna að leggja af stað um hádegið. Fengum stelpurnar lánaðar um helgina þannig að þau fá öll 3 að fara með okkur. Erum að fara með systrum hans Mumma og kærustum þeirra. Ætlum reyndar bara að gista eina nótt og fara svo suður í Keflavík. Erum búin að fá íbúðina lánaða hjá mömmu og pabba og ætlum að elda páskasteikina þar, þar sem það fer betur um okkur, enda helmingi stærri íbúð. Íbúðin okkar er heldur lítil þegar við erum öll saman komin. En við ætlum nú að láta okkur hafa þetta þangað til ég er búin með námið. Það er nú ekki svo mikið eftir, ekki nema rúmt ár.

Við erum líka búin að bóka flug til Danmerkur strax eftir próf hjá mér í mai:lol::lol::lol: Ætlum að taka langa helgi í Köben, bara tvö, frá fimmtudegi til mánudags. Fljúgum út fimmtudaginn 15. mai:d:d:d

Er búin að vera í verknámi núna á Landakoti og heilabilunardeild í Sóltúni. Það var mjög gaman, reyndar frekar rólegt yfir þessu en samt sem áður mjög gaman. Þjöppuðum reyndar náminu aðeins, þannig að það voru frekar langir dagar, en þó rólegir.

Komið gott held ég bara að fréttum.
Kv. Ingibjörg

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 10:32:12 / ingibjörg

...

Er nú ekki alveg að nenna þessu bloggi... en ætla samt að reyna.

Gerist nú ekki mikið á þessum bæ. Jóel Helgi er alltaf hress og kátur. Er farinn að æfa fótbolta af kappi, rosalega duglegur :) 

Ég er alltaf í skólanum, þessi önn er nú reyndar soldið öðruvísi þar sem ég var bara 3 vikur í skólanum og síðan tók bara við verknám, er búin að vera í verknámi á geðdeild í 2 vikur og fer svo í öldrun á Landakoti í 3 vikur, og fer svo í stjórnun á 14-G sem er hjartadeildin sem ég var á fyrir jól. Ég er líka búin að ráða mig í vinnu í sumar. Ætla að vera á gigtardeildinni. Hún lofaði mér að ég gæti verið bara á morgunvöktum á virkum dögum, og kanski einstaka næturvakt til þess að hífa upp launin. Líst bara mjög vel á þetta, verður samt skrítið að fara ekki vestur. En ég verð þá bara dugleg að kíkja í heimsókn.

Þorrablót á Skildi framundan og lætur maður sig nú ekki vanta þar. Hlakka mikið til, enda Jón Beck og Dóri í nefnd :D Veit nú ekki hvort Mumma hlakki jafn mikið til og ég en hann ætlar nú samt að láta sig hafa það og mæta með mér :)

Vorum með alla krakkana saman þessa helgi, sem var rosalega fínt, erum vanalega með stelpurnar helgina sem Jóel fer til pabba síns, þannig að þetta var skemmtileg tilbreyting. Krakkarnir ná mjög vel saman og leika sér bara út í eitt. Fórum með þau í bíó í gær á Bee Movei,  skemmtum okkur konunglega :)

En ætla ekki að hafa þetta lengra í bili...

Kv. Ingibjörg 


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 14:39:12 / ingibjörg

Jeiijjjj :)

Búin í prófum :haha:

Vinna á morgun og laugardaginn og svo kem ég vestur :haha:

Kv. Ingibjörg


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 11:55:33 / ingibjörg

Jólin eru að koma :)

Hæ, hæ :)

Rosalega flýgur tíminn, það er bara tæpur mánuður til jóla, hugsa sér.

En já, það er nú ekkert nýtt að frétta hjá mér. Alltaf á fullu í skólanum, er bara byrjuð að lesa fyrir prófin og svona. Búin að skila öllum verkefnum af mér og hef bara fengið fínar einkunnir, allavega fyrir þau verkefni sem ég er búin að fá til baka, sjáum til með hin, en ég er nú bara róleg yfir þeim, er búin að vera nokkuð samviskusöm í vetur.

Fékk ógeðslega pest í síðustu viku :evil: Fékk háan hita og kvef og gubbu og bara nefndu það, ojjj þetta var ógeðslegt. En ég á svo æðislegan kærasta sem hugsaði um mig og hjálpaði mér að hugsa um Jóel á meðan ég var sem verst, var bara hálf meðvitundarlaus á tímabili, mæli sko ekki með þessu. En svo þegar ég var nú öll að koma til þá lagðist Jóel í einhverja svipaða pest, nema sem betur fer fór hann nú ekki að gubba. Við erum nú bæði orðin nokkuð hress og hann mætti kátur á leikskólann í morgun.

Get ekki beðið eftir að klára prófin og komast loksin vestur. Er bara farin að sakna Stykkishólms. Við ætlum að vera í hólminum um jólin, ég og Jóel og Mummi. Verð að vísu að vinna helgina fyrir jól, föstudag og laugardag, þannig að ég kem sennilega vestur laugardaginn 22. des. strax eftir vinnu.

Jamm, en nenni þessu ekki núna svo ble ble

Kv. Ingibjörg


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 12:41:25 / ingibjörg

Verknám

Hæ hæ!

Nú hef ég verið á fullu í verknámi. Fór á hjartadeild, og lærði alveg helling þar. Er búin að taka allar vaktirnar mínar þar en á eftir að heimsækja einn sjúkling til að geta klárað verkefnin mín. Ég skil ekki alveg þessa endalausu verkefnavinnu í verknáminu. Finnst nú alveg nóg að vera á nýrri deild að læra fullt af nýjum hlutum, kynnast deildinni og sjúklingahópnum þar, en að vera svo á kafi í verkefnavinnu líka er bara aðeins of mikið. Erum svo líka í fyrirlestrum 2 daga í viku og umræðufundum í öðrum kúrsum... Æi sorrý er bara orðin pínu þreytt á þessu, verð að fá að væla smá :) En já eins og ég sagði þá lærði ég alveg helling á að vera að vinna í þessum bráðafasa eins og það er þegar maður vinnur á hjartadeild. Sá akút hjartastopp og allt sem var í kringum það og það var nú bara reynsla út af fyrir sig að standa svona til hliðar og horfa á fólkið vinna sína vinnu. Rosalega er þetta fólk sem vinnur þarna klárt. Langar að verða svona klár þegar ég verð stór :)

En annars er bara allt gott að frétta. Jóel er hress, fór í sína fyrstu heimsókn til tannlæknisins í síðustu viku, og hann stóð sig alveg eins og hetja, og það var engin hola :) hehe hann var svo duglegur og tannlæknirinn var alveg frábær, hvernig hann kom fram við barnið, Jóel fékk að prófa allar græurnar hjá honum og fikta í öllum þeim tökkum sem hann fann. Þetta var alveg frábært, og drengurinn sko alls ekki með tannlæknafælni eftir þessa heimsókn, spurði bara hvenær við færum svo aftur til hans :D

Er að fara á tónleikana með Andrea Bocelli í kvöld:D:D:lol: hlakka ekkert smá til. Á sko bestu frænku í heimi sem ætlar að bjóða mér með sér. Verðum í ágætis sætum, á B svæði, þannig að þetta verður alveg æðislegt vonandi. Ætlum út að borða áður en tónleikarnir byrja, og Jóel ætlar með í það, en svo fer hann bara til Mumma sem ætlar að passa hann á meðan tónleikarnir eru.

Jæja, ætla að halda áfram að læra.

Kv. Ingibjörg


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 19:05:16 / ingibjörg

Láttu hólminn heilla þig ...

Fór í hólminn um helgina og vá hvað það var gott að koma "heim".

Fórum heim með allan krakkaskarann, þ.e. Jóel Helga og tvíburana hans Mumma, Viktoríu og Petreu. Þetta gekk bara mjög vel, mun betur en ég gerði ráð fyrir.

Fórum aðeins út á laugardagskvöldið, fyrst til Snæbjartar og kíktum svo aðeins á Narfeyrarstofu. Þetta var bara nokkuð rólegt og skemmtilegt kvöld!

Komum svo aftur í borgina í gær.

En nenni ekki að skrifa meira svo....

Kv. Ingibjörg:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 11:36:30 / ingibjörg

Afmælisveisla, kveðjupartý, Brúðkaup og bíóferð!!!

Sælt veri fólkið!

Síðasta helgi var nú bara mjög góð hjá okkur litlu familýunni :)

Jóel Helgi varð 4. ára á sunnudaginn og af því tilefni vorum við með smá veislu á laugardaginn, ekkert stórt en samt skemmtileg stund, bara það nánasta sem kom. Gæjinn fékk fullt af fínum gjöfum og var alvæg hæstánægður með daginn, takk fyrir okkur :)

Á sunnudeginum fórum við svo í Keflavík, ég Jóel og Jón Gunnar sem fékk að gista hjá okkur. Þar fórum við fyrst til mömmu og pabba og svo fórum við í kveðjupartý til Bryndísar, en hún er að fara til Bretlands í biblíuskóla, flaug út í dag. Þar gleyptum við í okkur köku og fórum svo með Jón Gunnar heim til sín og brunuðum svo í bæinn aftur þar sem að ég var að fara í brúðkaup. Inga Lára og Jökull voru að gifta sig og voru svo sæt og fín. Eftir brúðkaup fór ég beint heim þar sem við Jóel Helgi vorum búin að ákvæða að fara í bíó í tilefni afmælisins. Fórum að sjá Hákarlabeitu, mjög skemmtileg mynd :) Eftir það komum við bara heim í kotið. Þar var Mummi með prinsessurnar sínar og höfðum við það bara kósý öll 5 það sem eftir var kvölds!

Þessi vika hefur svo bara gengið sinn vanagang, skóli, leikskóli, borða og sofa :)

Næsta helgi verður svo bara róleg líka, Jóel fer til pabba síns og ég verð að vinna, kvöldvakt á laugardaginn og morgunvakt á sunnudaginn.

Nenni ekki að hafa þetta lengra í bili, þetta eru bara orðnar leiðinlegar upptalningar!!!

Kv. Ingibjörg

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 22:26:35 / ingibjörg

Koma svo gott fólk... !!!

1. miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

 4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Uppáhalds búð:

 8. Tattoo eða göt:

 9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

 17. Getum við hist og bakað köku saman?

 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

 21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?

 22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

 24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera saman?

27. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 21:17:50 / ingibjörg

Ný færsla!

Ætli ég hendi ekki inn nokkrum orðum hérna, er alltaf svo löt við þetta enda er ekki mikið í gangi hjá mér þessa dagana.

Verslunarmannahelgin framundan og ætla ég bara að vera heima og vinna eins og vanalega, hef aldrei farið neitt um verslunarmannahelgina og finnst það svo sem allt í lagi. Langar nú samt að prófa að fara á þjóðhátíð, hver veit kanski maður fari á næsta ári.

Sumarið er nú bara langt komið og ekki svo langt í að skólinn byrji, ég byrja 28. ágúst og hlakkar nú eiginlega bara soldið til. Svo var ég að sækja um vinnu í vetur, ætla að vera að vinna 20%, fékk vinnu á B7 í Fossvoginum, þetta er gigtar- og almenn lyflækningadeild, held ég eigi eftir að læra helling þarna, er víst mjög fjölbreytt og skemmtileg deild.

Ég er líka komin með nýja íbúð í Reykjavíkinni. Er svo ánægð með hana, hún er nú ekkert mikið stærri en hin, en er samt öll mikið bjartari og skemmtilegri. Jóel er líka rosalega ánægður með nýja húsið eins og hann segir.

Svo eru það bara Dönsku dagarnir og mikið hlakka ég til, er búin að redda mér fríi alla helgina :haha: ekki slæmt það :) Held að Jóel verði hjá pabba sínum þannig að það verður djammað og djúsað alla helgina :)

Jóel Helgi er alltaf sprækur sem lækur. Er allt í einu orðinn eitthvað svo fullorðinn pjakkurinn ég bara skil ekki hvað tíminn líður, flýgur allt frá manni.

En er þetta ekki bara gott í bili... reyni að hafa ekki svona langt á milli næst!

Kv. Ingibjörg


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 00:56:07 / ingibjörg

SUMAR!!!

 

Nú er ég komin í hólminn góða og er byrjuð að vinna, ótrúlega gott að vera komin hingað aftur. Jóel er alltaf sprækur og mjög glaður með það að geta farið út svona næstum því eins og honum lystir. Um daginn var hann úti og mamma var alltaf að kíkja á hann, bara svona fylgjast með því hvort hann færi nokkuð, en mínum fannst þetta nú óþarfa hnýsni og tilkynnti ömmu sinni það að hann væri sko ekkert að fara, hún þyrfti ekkert að kíkja á sig :) Svo var púkinn líka að byrja í íþróttaskólanum í dag, eða "íþróttaálfaskólanum" eins og hann kallar þetta, veit ekki alveg hvor var spenntari að fara ég eða hann, en honum þótti þetta rosalega skemmtilegt og hlakkar til að fara aftur á fimmtudaginn, en þetta er mánaðarnámskeið, tvisvar í viku.

Búin að fá allar einkunnirnar mínar og gekk bara rosalega vel, náði öllu með ágætis einkunnum :D þannig að ég get bara slakað á og notið sumarsins án þess að hafa áhyggjur af því að þurfa að fara í próf í ágúst... ekki slæmt það :)

Ég fór fyrstu helgina í júní í kvennareið í Borgarnesi með henni Evu minni :lol: Skemmti mér alveg konunglega, og ótrúlegt en satt klunninn ég datt bara ekkert í allri ferðinni :) Svo ætlar hún Tinna að koma fyrstu helgina í Júlí og vera hérna í hólminum með okkur, ætlum að grilla saman á föstudagskvöldinu og reyna svo að gera eithvað skemmtilegt með strákunum á laugardeginum, get ekki beðið, verður svo gaman hjá okkur :)

Svo er ég að fara í bæinn eftir vinnu á fimmtudaginn. Jóel Helgi er að fara í nefkirtlatöku og fá rör í eyrun á föstudaginn, þannig að við ætlum svo bara heim í litla kotið okkar og vera það fram á sunnudag.

En ætla að segja þetta gott í bili.

Kv. Ingibjörg


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 22:43:02 / ingibjörg

Próf Próf Próf

Jæja, ætla að koma með eina stutta ;)

Ýmislegt að frétta, nenni samt ekki að skrifa það allt, bara svona það helsta :)

Eva og Davíð giftu sig á síðasta laugardag. Ótrúlega falleg athöfn og ég átti nú bara bágt með að fara ekki að skæla. Gekk allt svo vel, stelpurnar voru eins og ljós og gengu inn kirkjugólfið eins og þær hefðu aldrei gert annað, rosalega duglegar og Eva og Davíð sögðu bæði JÁ þannig að þetta var alveg yndislegt. Veislan á eftir var líka mjög skemmtileg, góður matur og skemmtilegar sögur sagðar af brúðhjónunum. Góður dagur og voru brúðhjónin alsæl með þetta allt saman :D

Svo er ég bara á fullu í próflestri þessa dagana. Fer í fyrsta prófið á föstudaginn. Fer í 4 próf og verð búin 14. mai. Ég veit, ekkert eurovision og kostningadjamm fyrir mig þar sem þetta er mánudagurinn eftir þau herlegheit :( En ég get nú sætt mig við það að eftir þessa prófatörn er ég svo bara komin í "sumarfrí". Fer heim í Stykkishólminn minn að vinna :) Hlakka nú eiginlega soldið til að byrja að vinna, fá smá pening og hitta allt fólkið :)

Jóel Helgi er alveg eyturhress þessa dagana. Alltaf kátur og hamast allan daginn á leikskólanum. Við ætlum að fara að sjá Karíus og Baktus á sunnudaginn, held hann verði nú ekki ósáttur með það pjakkurinn :D

En já, ætla að segja þetta gott í bili.

Kv. Ingibjörg


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 18:04:10 / ingibjörg

Brjálað að gera!!!

Hæ, hæ!

Kominn tími á eina færslu eða svo :)

Jæja, þá er ég búin að vera í verknámi á skurð- og svæfingadeild. Finnst þetta rosalega skemmtilegt og spennandi. Er búin að vera 3 vaktir og á eina eftir á morgun. Svo er það bara umræðufundur á föstudaginn og þá er aftur komið 2 vikna frí. Finnst þetta hálfasnalegt, var að koma úr þriggja vikna fríi, verknám eina viku og þá aftur frí... :S Veit samt ekki alveg hvernig morgundagurinn fer, þar sem skæruliðinn minn er orðinn lasinn, er kominn með hita og leiðindi. Vona bara að honum batni sem fyrst, og ég nái að redda barnapössun fyrir morgundaginn, krossa fingurna...

En annars er nú ekkert mikið að frétta. Snæbjört ætlar að reyna að koma um helgina og Jón Beck líka held ég, gaman gaman hjá mér. Svo er Jóel Helgi að fara til pabba síns um helgina, það er ef hann verður orðinn frískur.

En segjum þetta gott í bili.

Kv. Ingibjörg


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 23:16:55 / ingibjörg

Ég bilast ;)

Þú ert 90´ krakki EF...





Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]

Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

Þegar lögga og bófi var daglegt brauð

Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..

Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...

Þú áttir tölvugæludýr

...eða Furbie

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið

Og Windows '95 var best

Michael Jordan var aðal hetjan..

Kærleiksbirnirnir

Þú safnaðir lukkutröllum

Og áttir vasadiskó

Þú kannt Macarena dansinn utanað

Þú veist af hverju 23 er kúl tala

Áður en að Myspace varð vinsælt,

Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var..

Áður en ipod kom til sögunnar

Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið

Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast

Hver hefði getað ímyndað sér að við myndum sakna þessara tíma!



AHH góðir tímar!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 12:32:41 / ingibjörg

Hehehehehe

Ráðstefna fyrir Karla næstu helgi

Allir velkomnir aðeins fyrir karla..

Ath: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið .Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:

Fyrri dagur

Hvernig á að fylla ísmolamót?
Skref fyrir skref með glærusýningu

Klósettrúllur vaxa þær á klósettrúlluhaldaranum?
Hringborðsumræður

Munurinn á ruslafötum og gólfi
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)

Diskar og hnífapör: fer þetta sjálfkrafa í vaskinn eða uppþvottavélina?
Pallborðsumræður nokkrir sérfræðingar

Að tapa getunni - Að missa fjarstýringuna til makans
Stuðningshópar

Læra að finna hluti - Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi
Opin umræða

Seinni dagur

Tómar mjólkurfernur: eiga þær að vera í ísskápnum eða í ruslinu
Hópvinna og hlutverkaleikir

Heilsuvakt: það er ekki hættulegt heilsunni að gefa henni blóm
PowerPoint kynning

Sannir karlmenn spyrja til vegar þegar þeir villast
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar

Er erfðafræðilega ómögulegt að sitja þegandi meðan hún leggur bíl?
Ökuhermir

Að búa með fullorðnum: Grundvallarmunur á því að búa með mömmu þinni og maka
Fyrirlestur og hlutverkaleikir

Hvernig á að fara með eiginkonunni í búðir
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni

Að muna mikilvægar dagsetningar og að hringja þegar þér seinkar
Komdu með dagatalið þitt í tímann

Að læra að lifa með því að hafa alltaf rangt fyrir sér
Einstaklingsráðgjöf og samtöl.

Áhugasamir hafi samband á e-maili.

HAHAHAHA!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4